Arsenal gæti hætt við Sesko - Bayern í baráttuna um Gittens - Chelsea hyggst ekki selja Jackson
   lau 09. febrúar 2019 14:59
Magnús Már Einarsson
Ekki varalið í meistaraflokki kvenna - Starfshópur skipaður
Kvenaboltinn
Augnablik er varalið Breiðabliks.
Augnablik er varalið Breiðabliks.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Tillögu Breiðabliks um varalið í meistaraflokki kvenna var ekki samykkt á ársþingi KSÍ í dag. Breiðablik hefur verið með Augnablik sem venslafélag en með breytingunni hefðu til að mynda leikmenn verið skráðir í Breiðablik og spilað með samnefndu varaliði í 1. deildinni.

„Hlutgengi með varaliði hafa allir leikmenn sem eru skráðir í félagið nema þeir 11 leikmenn sem hafa leikið flesta leiki með aðalliði á sama leiktímabili og þeir leikmenn sem byrjuðu síðasta leik aðalliðs á undan. Varalið getur ekki unnið sér sæti í efstu deild. Varalið getur fallið um deild," sagði í tillögu Augnabliks.

Jón Björn Skúlason frá Haukum mótmælti tillögunni harðlega og hélt langa og öfluga ræðu þar sem hann sagði meðal annars að breytingin gæti haft það í för með sér að bilið myndi breikka ennþá meira á milli stærri og minni félaga þar sem yngri leikmenn myndu í ríkari mæli fara í stærri félög.

Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, kom einnig upp í ræðustól og tók undir með nafna sínum úr Hafnarfirði.

Jón Björn óskaði eftir að tillögunni yrði vísað frá og þess í stað að stofnaður verði starfshópur um heildarendurskoðun á kvennaknattspyrnu og stefnumótun til framtíðar. Það var samþykkt á þinginu með meginþorra atkvæða.

Þá hafði Jón Björn einnig orð á því í ræðu sinni að vegna iðkendafjölda sé vænlegra að stofna varalið í meistaraflokki karla. Jón gaf í skyn að tillaga þess efnis verði borin fram á næsta ársþingi.
Athugasemdir
banner