Breiðablik og KA eru í baráttu um að sækja Danijel Dejan Djuric í sínar raðir eftir að eftir að lánssamningur hans við Zeleznicar Pancevo í Serbíu gekk ekki í gegn.
Í Dr. Football þætti gærdagsins segir Albert Brynjar Ingason frá því að liðin eru í samkeppni um að fá leikmanninn og rímar það við heimildir Fótbolta.net.
Breiðablik vill festa kaup á Danijel en KA reynir að sækja leikmanninn á láni. Danijel er á mála hjá króatíska félaginu NK Istra og er samningsbundinn liðinu til ársins 2028.

„Ég hugsa að hann fái betri laun hjá KA. Við sjáum dílinn hjá Birni Snæ í fyrra. Það er mögulega smá örvænting þar. Þeir eru búnir að losa launapakka frá því í fyrra í bæði Ívari (Erni Árnasyni) og Birni Snæ,“ kom meðal annars fram í þættinum.
Danijel var mættur til Serbíu um miðjan síðasta mánuð og hafði samþykkt að ganga í raðir Zeleznicar Pancevo á láni út tímabilið á lokadegi serbneska gluggans en seinagangur varðandi pappíra olli því að skiptin gengu ekki í gegn.
Danijel er uppalinn í Breiðabliki en þaðan var hann seldur út til danska félagsins FC Midtjylland árið 2019.
Breiðablik hefur jafnframt verið orðað við Árna Vilhjálmsson sem leikur nú í neðri deildum í Sádi-Arabíu.
Athugasemdir