Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 09. apríl 2020 07:30
Aksentije Milisic
Willian gerir Barcelona erfitt fyrir - Fer hann til Frakklands?
Mynd: Getty Images
Willian, leikmaður Chelsea, er að renna út af samningi hjá liðinu en hann hefur enn ekki náð að semja um framhaldið. Hann hefur verið mikið orðaður við Barcelona.

Barcelona hefur lengi verið talið áhugasamt um leikmanninn en eins og staðan er núna ætlar liðið sér að leita annað og því er ekki pláss fyrir Willian í nýrri leikmannastefnu sem Barcelona er að taka.

Brasilíski vængmaðurinn er sagður hafa háar samningskröfur sem Barcelona ætlar ekki að taka þátt í. Félagið vill frekar kaupa ungan og efnilega leikmann.

Þrátt fyrir þessar fregnir er ekki enn útilokað að Willian endi hjá Barcelona en PSG er þó talið sem líklegur næsti áfangastaður hjá leikmanninum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner