Fotbolti.net
09.04.26 - 20:32
Ívan Guðjón Baldursson

Skilja ekki hvað kom fyrir Arnór Sig

Skilja ekki hvað kom fyrir Arnór Sig
Canon

Mynd: KSÍ

Sænskir fótboltafréttamenn ræddu ýmislegt í spjallvarpsþættinum vinsæla Bollsklubben þar sem fréttamenn frá stærstu miðlum Svíþjóðar mæta til að ræða mál líðandi stundar.
Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“
TENGT EFNI

Þakklátur Arnór loks mættur aftur - „Maður lærir að meta alla litlu hlutina“

Fréttamenn fóru víðan völl í hlaðvarpsþættinum og ræddu meðal annars stórveldið Malmö sem átti mikið vonbrigðatímabil í fyrra og byrjaði svo nýtt tímabil á jafntefli við Örgryte á dögunum.

Arnór Sigurðsson var í byrjunarliði Malmö gegn Örgryte en var skipt af velli eftir rétt rúma klukkustund, eftir að Örgryte hafði náð forystunni. Sænsku fréttamennirnir skilja ekki hvað hefur komið fyrir Arnór sem var áður fyrr einn af betri leikmönnum Allsvenskan þegar hann var á mála hjá Norrköping.

„Ég er í sjokki þegar ég hugsa um hversu góður hann var hjá Norrköping og hugsa með mér: 'hvað í andskotanum ætli hafi komið fyrir?'" sagði Irma Helin Zibanejad, fréttakona hjá TV4, í hlaðvarpinu.

Olof Lundh, fréttamaður Fotbollskanalen, tók undir.

„Þetta er algjör ráðgáta. Þegar hann kom til félagsins var hann ekki í leikformi eftir að hafa lent í meiðslavandræðum (hjá Blackburn Rovers) en núna er hann búinn að hafa allt undirbúningstímabilið til að undirbúa sig og ég hélt að hann myndi ná nýjum hæðum í sænska boltanum," sagði Lundh.

Malmö hefur fengið mikla gagnrýni eftir slakt síðasta tímabil þar sem félagið eyddi háum upphæðum í nýja leikmenn en tókst ekki að tryggja sér evrópusæti.

Arnór er 26 ára gamall og hefur meðal annars leikið fyrir CSKA Moskvu og Venezia á sínum ferli sem atvinnumaður, auk þess að eiga 35 landsleiki að baki fyrir Ísland.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.