Heimild: NRK
Alfred Johansson þjálfari Rosenborg fær stuðningsyfirlýsingu frá nafna sínum, Alfreð Finnbogasyni. Íslendingurinn er yfirmaður fótboltamála hjá norska stórliðinu.
„Við erum ekki þar sem við viljum vera en við getum ekki vorkennt sjálfum okkur," segir Alfreð sem segist trúa því að Johansson sé rétti maðurinn í starfi.
„Við erum ekki þar sem við viljum vera en við getum ekki vorkennt sjálfum okkur," segir Alfreð sem segist trúa því að Johansson sé rétti maðurinn í starfi.
„Ég er viss um það. Hann hefur sýnt að hann getur snúið hlutunum við. Við sjáum það á hverjum degi, hvernig hann undirbýr liðið fyrir æfingar og leiki og hvernig samskipti hans við leikmenn eru."
Alfreð hefur starfað hjá Rosenborg síðan í janúar og segist sjá það að þolinmæðin hjá stuðningsmönnum sé ekki mikil þegar illa gengur. Alexander Larsen, þekktur stuðningsmaður liðsins, hefur kallað eftir þjálfaraskiptum í fjölmiðlum og Steffen Iversen, fyrrum leikmaður liðsins, er á sama máli.
Rosenborg hefur tapað öllum þremur leikjum sínum til þessa í norsku úrvalsdeildinni 2-0 en félagið hefur ekki orðið norskur meistari í átta ár.


