Fotbolti.net
09.05.21 - 20:36
Victor Pálsson
Ítalska deildin

Ítalía: Juventus steinlá heima gegn Milan

Gengur ekkert.

Gengur ekkert.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Juventus 0 - 3 Milan</b>
0-1 Brahim Diaz ('45 )
0-1 Franck Kessie ('58 , Misnotað víti)
0-2 Ante Rebic ('78 )
0-3 Fikayo Tomori ('82 )
Juventus tapaði dýrmætum stigum í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið mætti AC Milan í Evrópubaráttu.

­Það hefur lítið gengið hjá Juventus á tímabilinu og fékk liðið skell á heimavelli gegn Milan í kvöld.

Brahim Diaz skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Milan undir lok fyrri hálfleiks og leiddu gestirnir í hálfleik.

Snemma í seinni hálfleik fékk Milan svo vítaspyrnu sem Franck Kessie tók. Kessie tókst þó ekki að skora og staðan enn 1-0.

Þeir Ante Rebic og Fikayo Tomori bættu þó við tveimur mörkum fyrir Milan fyrir lokaflautið og vann liðið frábæran 3-0 sigur.

Juventus er nú í fimmta sæti deildarinnar, stigi á eftir Napoli sem er í Meistaradeildarsæti.

Milan lyfti sér upp í þriðja sætið og er með jafn mörg stig og Atalanta sem er í því öðru.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio12+1932
2Roma12+2530
3Inter12+1529
4Milan12+1427
5Como12+1026
6Juventus12+721
7Frosinone12+520
8Napoli12+518
9Bologna12+218
10Genoa12-316
11Cagliari12-716
12Atalanta12-315
13Torino12-314
14Lecce12-1310
15Fiorentina11-89
16Parma12-128
17Sassuolo12-158
18Monza11-87
19Udinese12-136
20Venezia12-176
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.