Leao fáanlegur á lægra verði - Bernardo bíður eftir Barcelona - Framherji Frankfurt eftirsóttur
   lau 09. maí 2026 16:14
Brynjar Ingi Erluson
England: Tvö rauð í mikilvægum sigri Bournemouth - Markalaust á leikvangi ljóssins
Rayan gerði sigurmark Bournemouth
Rayan gerði sigurmark Bournemouth
Mynd: AFC Bournemouth
Brighton ætlar í Evrópu
Brighton ætlar í Evrópu
Mynd: EPA
Matheus Cunha var nálægt því að tryggja United sigurinn
Matheus Cunha var nálægt því að tryggja United sigurinn
Mynd: EPA
Bournemouth á enn möguleika á að ná fimmta sæti úrvalsdeildarinnar eftir 1-0 sigur á Fulham, en möguleikar Lundúnaliðsins á að komast í Evrópu fara minnkandi. Sunderland og Manchester United gerðu markalaust jafntefli á leikvangi ljóssins.

Bournemouth, Brighton og Fulham vissu mikilvægi þess að ná í sigra í dag enda lítið eftir af tímabilinu.

Leikur Bournemouth og Fulham var áhugaverður en tvö rauð spjöld voru gefin undir lok fyrri hálfleiksins. Ryan Christie, leikmaður Bournemouth, sá rauða spjaldið fyrir glæfralegt brot á Timothy Castagne. Hann fékk gula spaldið, en litnum var breytt eftir skoðun VAR.

Stuttu síðar sá Joachim Andersen, leikmaður Fulham, rauða spjaldið fyrir ljóta tveggja fóta tæklingu á Adrien Truffert. Mikill hiti í Lundúnum, en þó jafnt í liðum þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks.

Snemma í síðari hálfleik gerði Rayan sigurmarkið, en Bournemouth hafði verið að hóta því nokkrum mínútum áður. Eli Junior Kroupi átti tilraun sem hafnaði í slá og síðan kom sigurmarkið frá Rayan með skoti fyrir utan teig sem fór af Calvin Bassey og í netið.

Hrikalega sterkt hjá Bournemouth sem er í 6. sæti með 55 stig, þremur stigum frá Aston Villa sem er í fimmta sæti, en Fulham er í 11. sæti með 48 stig og möguleikinn á að komast í Evrópu nánast úti.

Sunderland gerði markalaust jafntefli við Manchester United á leikvangi ljóssins.

Man Utd var án nokkurra lykilmanna í leiknum á borð við Casemiro og Benjamin Sesko.

Sunderland fékk svo sannarlega færin til þess að fá eitthvað meira úr leiknum, en þau fóru forgörðum. Sunderland var betri aðilinn í fyrri hálfleik og átti Noah Sadiki besta færið er hann komst einn á móti Senne Lammens en sá belgíski varði frá samlanda sínum.

Í síðari átti Lutsharel Geertruida fínt færi sem hann setti í tréverkið áður en Matheus Cunha gat stolið öllum stigunum undir lokin en Robin Roes varði frábærlega.

Markalaust jafntefli niðurstaðan en alveg eðlilegt að leikmenn Sunderland séu svekktir með úrslitin miðað við gang mála í leiknum. Man Utd er í 3. sæti með 65 stig en Sunderland í 12. sæti með 48 stig.

Brighton vann mikilvægan 3-0 sigur á föllnu liði Wolves. Jack Hinshelwood og Lewis Dunk komu Brighton í tveggja marka forystu á fyrstu fimm mínútunum og gerði síðan Yankuba Minteh út um leikinn undir lok leiks.

Brighton er í 7. sæti með 53 stig og enn í baráttu um Evrópusæti á meðan Wolves er á botninum með 18 stig.

Úrslit og markaskorar:

Brighton 3 - 0 Wolves
1-0 Jack Hinshelwood ('1 )
2-0 Lewis Dunk ('5 )
3-0 Yankuba Minteh ('86 )

Fulham 0 - 1 Bournemouth
0-1 Rayan ('53 )
Rautt spjald: ,Ryan Christie, Bournemouth ('41)Joachim Andersen, Fulham ('45)

Sunderland 0 - 0 Manchester Utd
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner