Fotbolti.net
09.05.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Kæra Southampton fyrir njósnir

Kæra Southampton fyrir njósnir
Canon

Mynd: Southampton FC/X

Það er mikið lagt á sig til að vinna fótboltaleiki en enska fótboltadeildin (EFL) hefur ákært Southampton fyrir njósnir.

Southampton heimsækir Middlesbrough í fyrri leik liðanna í undanúrslitum í umspili um sæti í úrvalsdeildinni í dag.
Það sást til manns í þjálfarateymi Southampton í runna við æfingasvæði Middlesbrough.

Venjulega fá félög um 14 daga til að svara ákærunni en EFL hefur krafist þess að farið verði yfir málið eins fljótt og hægt er.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.