09.06.05 - 10:57
Magnús Már Einarsson
Kuffour til Roma (Staðfest)

Kuffour tæklar Mikael Silvestre.


Kuffour tæklar Mikael Silvestre.

AS Roma hefur fengið varnarmanninn Samuel Kuffour frítt frá Bayern Munchen. Kuffour sem er 28 ára hefur gert þriggja ára samning við Roma samkvæmt heimasíðu liðsins.
,,Ég hef unnið allt í Þýskalandi og nú þarf ég nýja hvatningu. Ég vel Roma þar sem (Franco) Sensi forseti liðsins hefur verið á eftir mér í nokkurn tíma. Fyrir þremur árum þegar að (Fabio) Capello var þjálfari liðsins voru einhver sambönd en skiptin gengu aldrei í gegn." sagði Kuffour við La Gazzetta dello Sport.
Kuffour hefur leikið á Ítalíu áður en þessi Ghanamaður kom 14 ára til Torino og lék með þeim í 2 ár áður en hann fór til Bayern.
Kuffour hefur leikið á Ítalíu áður en þessi Ghanamaður kom 14 ára til Torino og lék með þeim í 2 ár áður en hann fór til Bayern.
