Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. júní 2026 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
Kaupa einn besta framherjann úr La Liga: „Here we go!"
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Tyrkneska stórveldið Fenerbahce er að ganga frá kaupum á einum besta framherja nýliðinnar leiktíðar í La Liga, efstu deild spænska boltans.

Sá kemur úr röðum Mallorca sem féll óvænt niður um deild þrátt fyrir að næla sér í 42 stig úr 38 umferðum.

Vedat Muriqi er 32 ára gamall landsliðsmaður Kósovó sem skoraði 23 mörk í 37 deildarleikjum með Mallorca á tímabilinu. Þrátt fyrir alla þessa markaskorun tókst Mallorca ekki að forðast fall.

Fenerbahce kaupir Muriqi fyrir 15 milljónir evra. Hann er 32 ára gamall og er að ganga til liðs við Fenerbahce í annað sinn á ferlinum.

Hann skoraði 17 mörk í 36 leikjum með liðinu tímabilið 2019-20 áður en Lazio keypti hann til Ítalíu. Muriqi fann ekki taktinn í Serie A og skipti í kjölfarið til Mallorca fyrir fjórum og hálfu ári síðan.

Muriqi var valinn sem fremsti sóknarmaður í úrvalsliði tímabilsins á vefsíðu Football-Espana, með Lamine Yamal og Kylian Mbappé sér til aðstoðar á köntunum.

Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn á félagaskiptin.

   30.05.2026 09:10
Lið tímabilsins í spænska boltanum - Fjórir Börsungar

Slapp
banner
banner