Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   þri 09. júní 2026 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Mkhitaryan verður áfram - Lofar góðum bakverði
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Piero Ausilio, yfirmaður fótboltamála hjá Inter, hefur staðfest að Henrikh Mkhitaryan sé við það að skrifa undir nýjan samning við félagið.

   11.05.2026 23:38
Mkhitaryan að hætta þrátt fyrir samningstilboð?


Armeninn gerir eins árs samning á talsvert lægri launum, en hann er 37 ára gamall. Mkhitaryan kom við sögu í 39 leikjum á nýliðnu tímabili og hjálpaði Inter að endurheimta Ítalíumeistaratitilinn eftir að hafa endað í öðru sæti í fyrra.

Ausilio róaði einnig stuðningsmenn niður sem eru svekktir með félagaskipti Denzel Dumfries til Real Madrid.

„Mkhitaryan er ótrúlegur einstaklingur, hann er á öðru stigi en aðrir. Hann stendur sjálfur í samningaviðræðum, hann er ekki með neinn umboðsmann," sagði Ausilio og snéri sér svo að Dumfries.

„Við munum fá yngri leikmann inn í bakvarðarstöðuna, þetta er mjög góður leikmaður. Síðustu þrír vængbakverðirnir okkar hægra megin hafa verið (Achraf) Hakimi, (Joao) Cancelo og Dumfries, þannig verið jákvæð."

Talið er að Inter hafi mikinn áhuga á Marco Palestra, en Atalanta vill fá minnst 50 milljónir evra fyrir bakvörðinn efnilega.

Inter fékk aðeins 20 milljónir í kassann fyrir Dumfries vegna riftunarákvæðis.

   08.06.2026 08:30
Staðfestir áhuga á Curtis Jones - „Það er ekkert leyndarmál“


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Slapp
banner
banner