Armenski miðjumaðurinn Henrikh Mkhitaryan rennur út á samningi hjá Ítalíumeisturum Inter í sumar og er að íhuga að leggja skóna á hilluna.
Mkhitaryan er 37 ára gamall og hefur verið mikilvægur partur af liðsheildinni hjá Inter síðastliðin fjögur ár. Stórveldið vill gera nýjan eins árs samning við leikmanninn með um 30% launalækkun.
Hlutverk Mkhitaryan hefur breyst með aldrinum þar sem hann lék ýmist sem kantmaður eða í holunni á sínum yngri árum en hefur fært sig neðar á völlinn eftir félagaskiptin til Inter. Þar varð hann partur af öflugri miðju ásamt Hakan Calhanoglu og Nicoló Barella en aldurinn er byrjaður að segja til sín.
Hann hefur komið með beinum hætti að 7 mörkum í 36 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu en í heildina er hann búinn að spila 184 keppnisleiki á fjórum árum hjá Inter. Hann var algjör lykilmaður í liði AS Roma áður en hann skipti yfir til Inter og þar áður var hann á mála hjá Arsenal og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni - eftir að hafa gert garðinn frægan með Shakhtar Donetsk og Borussia Dortmund.
Það eru meira en fjögur ár liðin síðan Mkhitaryan lagði landsliðsskóna á hilluna og er mögulegt að þetta sé hans síðasta tímabil sem atvinnumaður í fótbolta.
Inter er búið að bjóða Mkhitaryan nýjan samning en leikmaðurinn er ekki viss um hvort hann sé tilbúinn að skrifa undir.
Cristian Chivu þjálfari hefur miklar mætur á Mkhitaryan og vill Inter halda honum þar sem aðrir reynsluboltar á borð við Matteo Darmian, Francesco Acerbi og Stefan de Vrij eru líklega á förum í sumar.
10.10.2025 23:30
Mkhitaryan: Mourinho kallaði mig skíthæl




