Íslenska kvennalandsliðið mátti þola harðan 1-6 skell gegn ríkjandi heimsmeisturum Spánar á Laugardalsvelli í kvöld, í lokaundankeppni HM. Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, viðurkenndi eftir leik að spænska liðið væri það besta sem Ísland hefur mætt,
„Svona upp og ofan,“ sagði Þorsteinn á blaðamannafundi eftir leikinn, þegar hann var spurður út í frammistöðu íslenska liðsins.
„Auðvitað var þetta erfiður leikur. Við erum að spila á móti frábæru liði. Þessi leikur var bara eins og leikurinn þeirra á móti Englandi á föstudaginn.“
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 6 Spánn
Aðspurður hvort þetta væri besta lið sem íslenska landsliðið hefði mætt stóð ekki á svarinu.
„Já.“
„Tæknilega eru þær frábærar, ofboðslega vel drillaðar. Góðar í fótbolta og öll grunnatriði eru upp á tíu.“
„Stundum vantaði kannski smá ró. En við vorum að elta mikið og þær voru góðar að halda boltanum, þreyta andstæðinginn og keyra svo á okkur.“
„Auðvitað getur maður alltaf gert betur. Maður getur lokað betur varnarlega. Einfaldar sendingar að klikka og svona. Við getum alveg gert betur þar, og að sjálfsögðu þegar maður tapar 6-1.“
„Jákvætt að við skoruðum, gott mark og gott að fá nýja markaskorara inn.“
Þorsteinn var ánægður með hvernig markið var útfært.
„Bara vel klárað, skyndisókn. Karólína var þolinmóð að bíða svolítið eftir sendingunni, sendir hann og Linda gat bara klárað þetta strax.“
„Linda er búin að standa sig vel og vonandi heldur hún því áfram. Gott að hún skoraði. Ég segi alltaf að það sé gott að skora, þá er það búið og pressan svolítið farin af þessum framherjum.“
„Það eru kannski ekkert margir jákvæðir hlutir sem maður horfir í svona strax eftir leik. Nú snýst þetta bara um það að þessi leikur er gleymdur og grafinn.“
„Nú þurfum við bara að bíða og sjá hvaða lönd koma upp úr hattinum og þá þurfum við bara að undirbúa okkur fyrir það verkefni.“
„Það er bara það sem við þurfum að horfa í núna. Við breytum ekki því sem er búið að gerast, en við getum haft áhrif á framtíðina.“



