Fotbolti.net
09.07.05 - 05:30
Magnús Már Einarsson

Ewerthon til Zaragoza (Staðfest)

Ewerthon til Zaragoza (Staðfest)
Canon
Spænska liðið Real Zaragoza hefur keypt sóknarmanninn Ewerthon frá Borussia Dortmund fyrir óuppgefna upphæð. Ewerthon sem er 24 ára Brasilíumaður hefur gert fimm ára samning við Zaragoza.
Alls skoraði Ewerthon 47 mörk í 119 leikjum fyrir Dortmund og kom eitt þeirra í leik gegn Werder Bremen í lokaumferðinni 2002 en það hjálpaði Dortmund að tryggja sér titilinn.

Talið er að fjárhagsvandræði Dortmund hafi valdið því að liðið seldi Ewerthon því leikmaðurinn hafði sjálfur lýst yfir að hann vildi vera áfram hjá félaginu þrátt fyrir áhuga annarra liða en Stuttgart og Benfica vildu einnig fá hann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.