Fotbolti.net
09.07.05 - 12:27
Magnús Már Einarsson

Sergio Garcia til Zaragoza (Staðfest)

Sergio Garcia í leik með Barcelona.  Hann er mikið fyrir að lita á sér hárið og var meðal annars með það blátt á síðustu leiktíð.

Sergio Garcia í leik með Barcelona. Hann er mikið fyrir að lita á sér hárið og var meðal annars með það blátt á síðustu leiktíð.

Canon
Real Zaragoza hefur keypt framherjann Sergio Garcia frá Barcelona á 1,5 milljónir evra. Garcia sem er 22 ára hefur gert fjögurra ára samning við Zaragoza en auk þess sem Barcelona fær 1,5 milljónir evra þá fær félagið 20% af þeim peningi sem Zaragoza selur hann á framtíðinni.
Garcia sem ólst upp hjá Barcelona var lánaður til Levante á síðustu leiktíð. Þar skoraði hann sex mörk í 31 leik en Levante féll þrátt fyrir það niður í 2.deild.

Zaragoza mun koma með breytta framlínu til leiks í La Liga á næstu leiktíð því liðið hefur selt David Villa til Valencia og látið þá Goran Drulic og Javi Moreno fara. Auk Garcia þá hefur brasilíski sóknarmaðurinn Ewerthon gengið til liðs við liðið eins og við greindum frá fyrr í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.