Fotbolti.net
09.07.05 - 14:19
Magnús Már Einarsson

Goor til Anderlecht (Staðfest)

Goor til Anderlecht (Staðfest)
Canon
Anderlecht hefur keypt belgíska miðjumanninn Bart Goor frá Feyenoord. Goor sem er 32 ára hefur gert þriggja ára samning við Anderlecht en hann vildi fara frá Feyenoord þar sem liðinu hefur gengið illa að vinna titla.
Goor spilaði með Anderlecht í fjögur tímabil, frá 1997-2001. Þaðan fór hann til Herthu Berlin áður en hann fór til Feyenoord í fyrra.

Einn af fyrstu leikjum Goor með Anderlecht gæti verið gegn Íslandsmeisturum FH þar sem þessi lið munu mætast í 2.umferð forkeppni Meistaradeildarinnar takist FH að leggja Neftci Baku frá Azerbaijan,

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.