Fotbolti.net
09.07.05 - 18:15
Arnar Geir Halldórsson

Sissoko til Liverpool (Staðfest)

Sissoko genginn til liðs við Evrópumeistara Liverpool.

Sissoko genginn til liðs við Evrópumeistara Liverpool.

Canon
Mohammed Sissoko er genginn til liðs við Liverpool en Sissoko virtist á leið til Everton fyrr í vikunni og má því segja að Liverpool hafi stolið honum af erkifjendunum. Rafa Benítez, stjóri Liverpool keypti hann á sínum tíma til Valencia frá Auxerre og trúir því að Sissoko sé tilvalinn viðbót í lið Evrópumeistaranna. Kaupverðið er talið vera 5,5 milljónir punda en samningur Sissoko nær til fjögurra ára.
,,Við höfum keypt Momo Sissoko frá Valencia!" sagði Rafa Benítez við SkySports síðuna.

Þessu bætti hann við: ,,Hann er verulega góður miðjumaður og er mjög kraftmikill leikmaður og sífellt að vinna sína vinnu, gefst aldrei upp. Hann er einnig góður með boltann og kemur með nýja vídd inn á miðjuna."

Að lokum bætti hann við: ,,Hann hefur átt tvö mjög góð ár hjá Valencia og vann titla hjá þeim. Ég þekki hann vel og hann er mjög góður leikmaður."

Benítez er ekki hættur á leikmannamarkaðinum og segir að búast megi við 2-3 nýjum andlitum á Anfield í næstu viku. Hann segist enn vonast eftir að fá Luis Figo en segir það í höndum Real Madird manna þessa stundina.

,,Það er mögulegt að fá hann en boltinn er hjá Real Madrid núna.Við erum með nokkra leikmenn í huga og Figo er einn af þeim. Við vonumst eftir að kaupa 2-3 nýja leikmenn til viðbótar og ég tel okkur vera sterkari en á síðustu leiktíð."

Það er greinilegt að Benítez ætlar sér stóra hluti með Evrópumeistarana að ári og verður spennandi að sjá hver þessi nýju andlit séu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.