Fotbolti.net
09.07.13 - 09:12
Magnús Már Einarsson

Umboðsmaður Suarez ítrekar að hann vilji fara frá Liverpool

Umboðsmaður Suarez ítrekar að hann vilji fara frá Liverpool
Canon

Mynd: Getty Images

Pere Guardiola, umboðsmaður Luis Suarez, hefur ítrekað við Liverpool að leikmaðurinn vilji fara frá félaginu til að spila í Meistaradeildinni.

Samkvæmt frétt BBC fundaði Guardiola með Brendan Rodgers knattspyrnustjóra Liverpool og Ian Ayre framkvæmdastjóra félagsins í gær.
Þar lét hann ósk Suarez aftur í ljós en Guardiola bað þó ekki formlega um sölu fyrir hönd leikmannsins.

Suarez er sjálfur ennþá í sumarfríi eftir að hafa spilað með Úrúgvæ í Álfukeppninni.

Fyrr í sumar sagði Suarez í viðtölum að hann hafi áhuga á að spila í Meistaradeildinni og að hann sé ekki ánægður með lífið á Englandi.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.