Fotbolti.net
31.10.26 - 11:36
Brynjar Ingi Erluson

Emil kveður Stjörnuna og fer í Fram - „Stjarnan mun alltaf eiga stað í mínu hjarta“

Emil Atlason er farinn frá Stjörnunni

Emil Atlason er farinn frá Stjörnunni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emil Atlason er farinn frá Stjörnunni og á leið í raðir Fram, en Stjörnumenn kveðja framherjann með hlýjum orðum í tilkynningu sem félagið birti á samfélagsmiðlum í dag.
Framherjinn hefur leikið með Stjörnunni undanfarin sjö ár og verið einn af lykilmönnum liðsins á þeim tíma.

Hann skoraði alls 61 deildarmark fyrir Stjörnuna og varð meðal annars markakóngur Bestu deildarinnar sumarið 2023 með 18 mörk.

„Ég vil þakka stuðningsmönnum, leikmönnum, þjálfurum, sjálfboðaliðum, Stjörnufólki og Garðbæingum fyrir tímann minn hjá félaginu. Á þessum árum hefur Stjarnan hjálpað mér að þróast og þroskast sem fótboltamaður og manneskja. Á þessari vegferð fann ég sjálfan mig og er ég einstaklega þakklátur fyrir það. Stjarnan mun alltaf eiga stað í mínu hjarta. Takk fyrir mig! Kærleikskveðjur,
Emil Atlason,“
skrifaði Emil í kveðju sinni til Stjörnufólks.

Hann er á leið í raðir Fram þar sem hann mun hitta fyrir sinn gamla þjálfara hjá KR, Rúnar Kristinsson, en búist er við að félagið kynni hann til leiks síðar í dag.

Stjörnumenn þakka Emil einnig fyrir árin hjá félaginu og óska honum góðs gengis í framtíðinni.

„Við viljum þakka Emil kærlega fyrir öll árin, allar minningarnar og ómetanlegt framlag til félagsins. Nú tekur við nýr kafli og óskum við Emil góðs gengis í nýju verkefni. Takk fyrir okkur, Emil Atla #22!“ segir í tilkynningu Stjörnunnar.

Hann er að ganga í raðir Fram

Hann er að ganga í raðir Fram

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.