Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 09. júlí 2021 18:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
U16 landsliðið lagði Danmörku að velli
Mynd: Aðsend
U16 landslið kvenna lék sinn annan leik á opna Norðurlandamótinu í dag þegar liðið mætti Danmörku 2.

Ísland gerði 1-1 jafntefli við Svíþjóð í fyrsta leik mótsins sem spilaður var síðastliðinn þriðjudag. Sama dag lék Danmörk 2 gegn Færeyjum og vann 2-1 sigur. Danmörk er með tvö lið á þessu móti.

Svo fór að Ísland vann leikinn í dag, 1-0. Ísabella Sara Tryggvadóttir, leikmaður KR, skoraði mark Íslands í fyrri hálfleiknum.

Það var tekið æfingavítaspyrnukeppni eftir leikinn og hana vann Ísland, 4-2. Ísland vann líka vítaspyrnukeppnina sem var tekinn eftir fyrsta leikinn gegn Svíum.

Byrjunarlið Íslands í dag:
Emilía Óskarsdóttir
Eyrún Embla Hjartardóttir (F)
Harpa Helgadóttir
Henríetta Ágústsdóttir
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir
Iðunn Rán Gunnarsdóttir
Ísabella Sara Tryggvadóttir
Lilja Liv Margrétardóttir
Margrét Rún Stefánsóttir (M)
Snæfríður Eva Eiríksdóttir
Vigdís Lilja Kristjánsdóttir
Athugasemdir
banner
banner
banner