Kamada verður áfram í London

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Japanski miðjumaðurinn Daichi Kamada er búinn að skrifa undir samning og verður því áfram hjá Crystal Palace á næstu leiktíð.
Kamada gerir eins árs samning sem gildir út næstu leiktíð en hann er 29 ára gamall og var í mikilvægu hlutverki á síðustu leiktíð, þar sem hann lék 46 leiki er Crystal Palace vann Sambandsdeildina eftir að hafa unnið enska bikarinn í fyrra.
Kamada, sem verður þrítugur í ágúst, er með 53 landsleiki að baki fyrir Japan og var með landsliðinu sem datt út gegn Brasilíu í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins.
Japaninn lék fyrir Eintracht Frankfurt og Lazio áður en hann skipti yfir í enska boltann.

Daichi Kamada has extended his stay with the club ????
— Crystal Palace F.C. (@CPFC) July 8, 2026
His new deal will run until the summer of 2027 ?? pic.twitter.com/8x94vQFiP9