
Hrósar Ými eftir tapið - „Alltaf verið hörkuleikir“


Mynd: Raggi Óla


Mynd: Raggi Óla
„Við notuðum þessa keppni til þess að gefa leikmönnum tækifæri sem hafa minna fengið að spila. Mér fannst menn ekki sýna alveg rétta andlitið í fyrri hálfleik en mér fannst við koma með fína orku í seinni hálfleik, það bara gekk ekki" sagði Ásbjörn Jónsson, þjálfari Hvíta Riddarans eftir 0-2 ósigur á heimavelli gegn Ými í Gatorade Bikar Fotbolta.net.
„Þetta er hörku lið, við vorum búnir að spila við þá í fyrra og aftur núna. Alltaf verið hörku leikir og þetta eru jöfn lið."
Leikmennirnir sem fengu tækifæri í dag, hvernig fannst þér þeir spila í dag?
„Já, komu með aukna orku inn í þetta sem ég var að leitast eftir."
Ásbjörn fannst varnarframmistaða Ýmis vera góð og segist að það hafi verið erfitt að brjóta þá niður.
„Þetta var hörku varnarframmistaða hjá Ými og bara hrós á þá, fyrst og fremst."
„Við fengum ekki mikið af færum, þetta var frábær frammistaða hjá Ými, þeir áttu þetta skilið."
Er hægt að læra af þessum leik?
„Já já, þetta er bara þannig keppni að það geta allir unnið alla í þessu og vonandi læra menn af því sem menn gerðu vitlaust."
Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan


