Nýir samningar fyrir Tchouaméni og Valverde

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Franski miðjumaðurinn Aurelién Tchouaméni er að skrifa undir nýjan samning við Real Madrid. Þetta telur José Mourinho þjálfara vera meðal forgangsmála hjá félaginu, að semja við Tchouaméni og nokkra aðra lykilmenn á borð við Federico Valverde.

TENGT EFNI
Valverde endaði á sjúkrahúsi eftir slagsmál við Tchouameni
Nýr samningur Tchouaméni gildir næstu fimm árin, eða til sumarsins 2031. Hann skrifar undir þrátt fyrir að hafa lent í rifrildum við Valverde á síðustu leiktíð, sem enduðu með því að Úrúgvæinn þurfti aðhlynningu á spítala eftir slæmt fall.
Það er ekkert illt á milli leikmannanna sem sættust eftir atvikið en þeir eru báðir mikilvægir hlekkir á miðjunni.
Þetta eru slæmar fréttir fyrir stuðningsmenn Manchester United sem höfðu verið að gera sér vonir um að krækja í Tchouaméni í sumar.
Tchouaméni er 26 ára gamall og með tvö ár eftir af núverandi samningi. Hann er staddur með franska landsliðinu á heimsmeistaramótinu þessa dagana þar sem þjóðin mætir Marokkó í 8-liða úrslitum annað kvöld.

Man Utd tilbúið að reiða fram stóru seðlana fyrir leikmann Real

Mynd: EPA