Fotbolti.net
08.07.26 - 22:38
Ívan Guðjón Baldursson

Justin Bieber, Madonna og BTS stíga á svið

Justin Bieber, Madonna og BTS stíga á svið
Canon

Mynd: EPA

Búið er að bæta tónlistarstjörnunni Justin Bieber við lista þeirra sem munu troða upp í fyrstu hálfleikssýningu í sögu heimsmeistaramótsins í fótbolta.
Justin Bieber mun spreyta sig á sviðinu á úrslitaleik HM ásamt öðrum stórstjörnum. Þar á meðal má finna Madonna, Shakira og BTS.

Í heildina hefur listafólkið ellefu mínútur til að skemmta áhorfendum í leikhléinu, en sýningin inniheldur einnig Burna Boy, Gustavo Dudamel og PS22 Chorus ásamt Coldplay. Þar að auki munu Kermit og Miss Piggy úr Prúðuleikurunum skemmta áhorfendum.

„Ég er þakklátur fyrir að vera partur af hálfleikssýningu heimsmeistaramóts FIFA og geta þannig stutt við skólagöngu barna um allan heim," sagði Bieber meðal annars.

Markmiðið með hálfleikssýningunni er að safna 100 milljónum dollara sem munu renna í góðgerðarmál.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.