
„Þrjú mörk gegn fjórðudeildarliði er ekki gott“

Fjölnir eru úr leik

Mynd: Fjölnir

Fjölnir eru úr leik

Mynd: Fjölnir
Fjölnir tapaði á svekkjandi hátt gegn Álftanesi í æsispennandi leik í Gatorade bikar Fótbolta.net sem endaði með sigri Álftnesinga í vítaspyrnukeppni. Leikurinn fór 3-3 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu en það komu fjögur mörk í framlengingunni.
Fótbolti.net var á staðnum og náði viðtali við Helga Snæ Árnason leikmann Fjölnis.
„Við gáfum þeim ódýr mörk og tapa einvígum og náðum ekki að opna þá í fyrri en það gerðist svolítið í seinni , svo í rauninni bara heppnir að skora þetta þriðja mark í lokin á síðustu mínútunum."
Var eitthvað sem þér fannst geta gengið betur í leiknum
„Við þurfum að fá á okkur færri mörk, 3 á móti fjórðudeildarliði er ekki gott. Þeir höfðu momentumið, smá fautaskap og talanda sem var bara vel gert hjá þeim, en við þurfum að stíga upp og vera betri og standa þetta af okkur almennilega"
Helgi var að lokum spurður hvort hafði gengið vel
Við vorum þolinmóðir að færa á milli kanta, við hefðum getað fært betur á milli kanta og hefðum átt að færa meira á milli kanta, vorum þolinmóðir og ekki að rusha neitt fannst mér. Við verðum frekar að horfa í það sem við þurfum að bæta okkur í og það er á báðum endum vallarinns, bæði í vörninni og sókninni.
Þessi úrslit þýða að Fjölnismenn hafa lokið keppni í .net bikarnum og Álftnesingar halda áfra í 8 liða úrslit.



