Fotbolti.net
09.08.16 - 20:38
Gabríel Sighvatsson

Eiður Benedikt: Heimir Hallgríms græjaði hana beint í stólinn

Auglýsing
Eiður Benedikt: Heimir Hallgríms græjaði hana beint í stólinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Hertz
Eiður Benedikt Eiríksson var afar ósáttur eftir 2-1 tap gegn ÍBV í dag. Eiður vill meina að hans lið hafi átt skilið meira í dag.

<i>„Við áttum skilið þrjú stig í dag, það er klárt mál,\"</i> sagði Eiður.
ÍBV átti mun fleiri skot en Fylkir í leiknum og hefði átt að skora miklu fleiri mörk en raunin var. Sigurmarkið koma á endanum en það var ekki fyrr en í uppbótartíma, þegar Fylkir var einum manni færri.

„Leimaður ÍBV á að vera kominn með rautt í leiknum, fer aftan í leikmann og fær ekki einu sinni gult, svo fer hún illa í leikmann okkar og þær bara græða á þessu og leikmaðurinn fær ekki einu sinni spjald,\" sagði Eiður.

Rut Kristjánsdóttir þurfti að fara af velli undir lok leiks en hvað var það sem gerðist?

„Hún fær olnbogaskot og missir tönn en sem betur fer þá var Heimir Hallgríms á staðnum þannig að hann græjaði hana beint i stólinn,\" sagði Eiður.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.