Samúel Kári: Stefni á að komast í A-landsliðið aftur sem allra fyrst
Auglýsing

Samúel Kári Friðjónsson á HM í sumar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samúel Kári Friðjónsson á HM í sumar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland tekur á móti Slóvakíu í undankeppni fyrir U-21 Evrópumótið á þriðjudaginn næstkomandi klukkan 15:30 á Alvogen-vellinum. Samúel Kári Friðjónsson leikmaður liðsins segir að eftir frábæran sigur gegn Eistlandi þá þarf nú bara að einbeita sér að því að vinna þennan leik.
„Þetta var frábær leikur hjá okkur og nú er það búið og næsta verkefni framundan. Eins og við sýndum þegar við unnum þá 2-0 úti og við ætlum að gera það sama hér. Við eigum eftir að skoða þá vel á næstu dögum, það er nýr þjálfari og nýtt kerfi en það breytir engu um hvernig við munum spila.\"
Samúel var í leikmannahópi A-landsliðsins á HM í sumar og sagði hann að Hamren hefði ekki heyrt í sér en Freyr Alexandersson aðstoðarþjálfari A-landsliðsins hafi hringt í sig og þeir verið sammála um að hann myndi spila með U21 árs landsliðinu í þessu verkefni.
„Nei ég talaði ekki við hann(Hamren), en Freysi hringdi í mig og við ræddum málin og hann lýsti stöðunni fyrir mér. Ég verð með U21 árs landsliðinu núna og það var fínt samtal þar sem við vorum sammála um það.\"
Samúel sagði að það væri að sjálfsögðu markmið sitt að komast aftur í A-landsliðið sem allra fyrst en nú væri full fókus á að vinna þessa leiki með U-21 árs landsliðinu og reyna að komast á Evrópumótið með þeim.
„Þetta er stór gluggi fyrir alla fótboltamenn að vera í landsliði, að hafa verið með A-landsliðinu á HM, Indónesíu og Bandaríkjunum er nátturulega bara heiður og það er stefnan að komast í þann hóp eins fljótt og auðið er. Núna þegar maður er í þessu verkefni með U21 árs landsliðinu er auðvitað bara full fókus á það. Við þurfum að taka sigur í næsta leik og sjá hvernig hinir leikirnir fara hjá hinum liðunum. Við nálgumst alla leiki til að vinna og eigum góða möguleika á því.\"