Fotbolti.net
09.09.20 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Þessir dæma bikarslagi morgundagsins

Einar Ingi dæmir leik Breiðabliks og KR.

Einar Ingi dæmir leik Breiðabliks og KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Á morgun ræðst hvaða þrjú lið fylgja ÍBV í undanúrslit Mjólkurbikars karla en þá verða áhugaverðir leikir í 8-liða úrslitum á dagskrá.

KSÍ hefur gefið út hverjir sjá um að dæma leikina.

Helgi Mikael Jónasson dæmir viðureign FH og Stjörnunnar á Kaplakrikavelli og Erlendur Eiríksson heldur um flautuna þegar Valur fær HK í heimsókn.

Einar Ingi Jóhannsson sér svo um dómgæsluna í Kópavogi þar sem Breiðablik og KR eigast við.
fimmtudagur 10. september

Mjólkurbikar karla
16:30 FH-Stjarnan (Kaplakrikavöllur) - Helgi Mikael Jónasson
19:15 Breiðablik-KR (Kópavogsvöllur) - Einar Ingi Jóhannsson
19:15 Valur-HK (Origo völlurinn) - Erlendur Eiríksson
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.