09.10.26 - 12:32
Elvar Geir Magnússon
Endurgera borða á Old Trafford þar sem hæðst er að Man City

Gamli borðinn hefur verið seldur til safnara í Kúveit.

Mynd: X

Stuðningsmenn Manchester United munu endurvekja frægan borða á Old Trafford á morgun. Borðinn mun sýna að 50 ár séu liðin frá því að Manchester City vann síðast bikar.
Borðinn var upphaflega settur upp árið 2000 en þá voru 24 ár liðin frá síðasta titli City, deildarbikarnum árið 1976.
Bætt var einu ári við talninguna á hverju ári þar til árið 2011 þegar City lauk loksins bikarþurrðinni með því að sigra Stoke City í úrslitaleik FA-bikarsins. Borðinn var þá seldur til safnara í Kúveit.
Nú er búið að endurgera nýjan borða í kjölfar þess að City var fundið sekt um alvarleg brot á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Þó að City sé búið að áfrýja úrskurðinum telja margir stuðningsmenn Manchester United að velgengni nágranna sinna undir eignarhaldi Sjeik Mansour ætti að vera afmáð úr sögubókunum.

Old Trafford will unveil return of the ticker flag at Saturday’s Man Utd v Spurs match https://t.co/s2TqCP6jwD
— Man Utd The Religion (@ManUtdTheRelig) October 9, 2026