09.10.26 - 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sveindís: Hún er frábær leikmaður og á framtíðina fyrir sér
Skrifar frá Rovinj í Króatíu

Sveindís Jane Jónsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sveindís Jane Jónsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Mér finnst hún frábær," sagði Sveindís Jane Jónsdóttir um kollega sinn á kantinum í íslenska landsliðinu, Thelmu Karen Pálmadóttur, í viðtali við Fótbolta.net í gær.
Thelma Karen er aðeins 18 ára gömul en hefur komið af krafti inn í landsliðið.

TENGT EFNI
Nýtur lífsins í Los Angeles - „Það eina leiðinlega við þetta"
Hún skoraði til að mynda sigurmarkið gegn Úkraínu í undankeppni HM síðasta sumar.
„Hún er rosalega ungur leikmaður, gaman að sjá sjálfstraustið sem geislar af henni. Hún er mjög hávær líka með okkur hérna og það er gaman að sjá að umhverfið hjá okkur er opið. Það er gott að sjá að ungu leikmennirnir séu með svona mikið sjálfstraust og láta heyra í sér," sagði Sveindís jafnframt um Thelmu.
„Hún er frábær leikmaður og á framtíðina fyrir sér."
Ísland mætir Króatíu síðar í dag í fyrri leik liðanna í umspili um sæti á HM.

Thelma Karen Pálmadóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson