Fotbolti.net
09.10.26 - 09:09
Elvar Geir Magnússon

Strákarnir í U21 mæta Grikklandi í umspilinu

Strákarnir í U21 mæta Grikklandi í umspilinu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
U21 karla mætir Grikklandi í umspili um sæti á EM 2027.

Leikirnir, heima og að heiman, fara fram dagana 11.-17. nóvember. Fyrri leikurinn verður á Íslandi og sá seinni í Grikklandi.

Dregið verður í lokakeppnina 26. nóvember, en hún fer fram í Albaníu og Serbíu dagana 16. júni - 3. júlí.
Drátturinn, sem fór fram í Nyon í Sviss. var opinn. Engin styrkleikaröðun.

Leikirnir í umspilinu
Tyrkland - Tékkland
Finnland - Írland
Ísland - Grikkland
Danmörk - Holland

Í beinni

09:08Þá er drættinum lokið.
Gaman að vera með ykkur og njótið helgarinnar!
09:08Tyrkland - Tékkland
09:07Finnland - Írland
09:07ÍSLAND - Grikkland
Það held ég.
09:07Danmörk - Holland
Fyrsta viðureignin er klár
09:07
Það er byrjað að draga lið sem byrja á heimavelli... Danmörk, Ísland, Finnland og Tyrkland. Við getum semsagt ekki mætt Dönum, Finnum eða Tyrkjum.
09:05
Danmörk kemur fyrst upp úr pottinum.
09:05Þá hefst drátturinn!
Góða skemmtun!
09:04Þættinum hefur borist bréf
Umræddur Alleca er yfir landsliðsmótum karla hjá UEFA. Takk fyrir það.
09:03Athöfnin er hafin
Marcello Alleca tekur til máls. Hef ekki hugmynd um hver það er en hann er í flottum UEFA jakkafötum og er greinilega ekki vanur því að standa fyrir framan sjónvarpsmyndavél. Lítil útgeislun.
09:02Geggjaður gluggi
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Þetta var geggjaður gluggi hjá U21 landsliðinu. 1-1 jafntefli gegn feikilega öflugum Frökkum, 5-1 upprúllun á Sviss og svo 2-0 útisigur á Þórsvelli í Fjöreyjum.
09:00Leiðin til Albaníu og Serbíu
Drátturinn í Nyon í Sviss í dag er opinn, engin styrkleikaröðun, og Ísland getur því mætt hvaða liði sem er af eftirfarandi liðum:

Tékkland, Danmörk, Finnland, Grikkland, Holland, Írland og Tyrkland.

Umspilið verður spilað í næsta mánuði, spilað verður heima og að heiman. Alls 16 lið taka þátt í lokamótinu sem fram fer næsta sumar í Albaníu og Serbíu.
08:59Marchetti í Berlín
Því miður tel ég ansi ólíklegt að Giorgio Marchetti, kóngurinn í að draga, muni vera að störfum í þessum drætti. Það var UEFA fundur og fjör í Berlín í gær og hann var þar væntanlega að væna og dæna. Slökunardagur í dag hjá honum.

Mynd: EPA

08:58Óskamótherji?
Ef ég ætti að velja þá myndi ég taka Írland.
08:57Heil og sæl!
Athöfnin fer fram í Nyon í Sviss og hefst senn. Við fylgjumst með drættinum beint hér.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.