Fotbolti.net
09.10.26 - 12:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Jói Berg: Hefði verið rómantískur endir á ferlinum

Skórnir komnir á hilluna.

Skórnir komnir á hilluna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Berg Guðmundsson lagði í gær skóna á hilluna eftir farsælan feril sem atvinnumaður erlendis og landsliðsmaður. Hann er uppalinn Bliki og lék sem atvinnumaður í Hollandi og á Englandi áður en hann lauk ferlinum í Miðausturlöndum.

Hann var til viðtals í gær í nýjum hlaðvarpsþætti, Sjöan, þar sem hann og Hörður Snævar Jónsson ræða málin. Hann sagði þá frá því að hann hefði verið nálægt því að semja við Burnley í sumar en ekkert varð að því þar sem Craig Bellamy skrifaði ekki undir sem stjóri liðsins og kaus að vera áfram landsliðsþjálfari Wales. Jói hefði því verið tilbúinn að taka ár í viðbót ef samningur hefði náðst við Burnley.
Jóhann Berg leggur skóna á hilluna
TENGT EFNI

Jóhann Berg leggur skóna á hilluna

„Það var svona smá samtal þar en það svolítið velti á því að Craig Bellamy hefði tekið við starfinu, hann var eiginlega bara búinn að skrifa undir þegar hann ákvað að taka ekki við þessu. Og það hefði verið gaman að enda þetta þar, en það var kannski meiri draumur en annað," segir Jói í þættinum.

„Það kom eitthvað annað á borðið en ekkert svona það sem ég var tilbúinn að hoppa á, kominn með þrjú börn og ekki tilbúinn að flytja í burtu frá þeim og vera einhvers staðar einn. Þannig að þetta var ákvörðunin, að hætta, og bara mjög ánægður með það."

Talandi um þetta Burnley, hefði það svona verið bara rómantískur endir á farsælum ferli?

„Já, já, það var það. Ég kannski vissi að ég gæti hjálpað og þá ekki bara inni á vellinum, auðvitað þekki klúbbinn inn og út og fannst það eitthvað verkefni sem ég gæti séð mig gera. En eins og ég segi þá bara varð það ekki þannig og allt í góðu, en ég hef átt í góðu svona samtali við Burnley og þekki eigendurna þar vel. En þetta velti svolítið á að Craig Bellamy hafði tekið við og menn þarna ákváðu að sleppa því," sagði Jói Berg og Hörður Snævar sagði í kjölfarið: „Helvítis Bellamy."

Breiðablik reyndi að semja við Jóa fyrir tímabilið. Var það nálægt því að gerast?

„Já, já, ég alveg átti samtal við þá og virkilega gott samtal og gott fólk sem er í kringum Breiðablik. Ég var alveg að hugsa um það en við svona sem fjölskylda vorum ekki alveg tilbúin að flytja til Íslands. Ég var búinn að spila í deildinni og búinn að spila með Blikum þannig það var ekki eitthvað sem ég átti eftir þannig að ég hugsaði að þetta væri ekki fyrir mig. Mér fannst það bara einhvern veginn ekki vera rétta skrefið. Ég þakka þeim auðvitað fyrir bara frábær samtöl og Breiðablik er alltaf mitt lið á Íslandi," segir Jói í þættinum sem hlusta má hér að neðan.

Craig Bellamy var aðstoðarþjálfari Vincent Kompany þegar Jói var leikmaður liðsins.

Craig Bellamy var aðstoðarþjálfari Vincent Kompany þegar Jói var leikmaður liðsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik er alltaf mitt lið á Íslandi,

Breiðablik er alltaf mitt lið á Íslandi,

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.