08.10.26 - 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nýtur lífsins í Los Angeles - „Það eina leiðinlega við þetta"
Skrifar frá Rovinj í Króatíu
Auglýsing

Sveindís Jane Jónsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sveindís er lykilkona í íslenska landsliðinu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveindís í leik með Íslandi.

„Þetta er búið að vera mjög næs," segir Sveindís Jane Jónsdóttir um undanfarna daga í Króatíu. Íslenska landsliðið mun á morgun spila við heimakonur í fyrri leik liðanna í umspili um að komast inn á HM.
„Það er gaman að hitta stelpurnar, vera saman hér í Króatíu og njóta lífsins."

„Það er alltaf gaman að spila svona leiki sem skipta svona miklu máli og eru stórir. Við vitum allar hvað okkar markmið er. Við þurfum að byrja á því að vinna Króatíu hér úti."
Lífið í Los Angeles
Sveindís spilar með Angel City í Bandaríkjunum og er núna á sínu öðru tímabili þar.
Hvernig er lífið í Bandaríkjunum?
„Það er bara mjög næs. Ég geri voða lítið annað en að æfa. Það er allavega mikið hægt að gera ef maður nennir því eftir æfingar, en ég er mikið að hugsa um fótboltann. Það er ekki mikill tími fyrir mig til að fara eitthvert og skoða mig um. Það er alltaf gott verður og næs að æfa við góðar aðstæður."
Sveindís hefur á þessu tímabili skorað átta mörk í 20 leikjum fyrir lið sem er að berjast um að komast í úrslitakeppnina í bandarísku deildinni.
„Ég er að spila sem nía og ég hefði viljað skora fleiri mörk og leggja meira upp. Ég er mikið að sinna varnarleiknum og það hefur gengið vel í því líka. Ég sé framfarir þar. Ég þarf að halda áfram og setja vonandi fleiri mörk. Við erum á góðum stað upp á að komast í úrslitakeppnina."
„Þetta er frábær deild og mér finnst mjög gaman að spila í deild þar sem allir leikir eru ótrúlega jafnir. Það geta allir unnið alla. Þetta er deild sem hentar mér mjög vel," sagði Sveindís.
Hún er mjög ánægð með þá ákvörðun að fara til Los Angeles. „Það eina leiðinlega við þetta eru ferðalögin. Þetta eru mjög löng ferðalög. Ég kom hingað beint frá New York þannig að ég þurfti ekki að ferðast of langt. Þá var ég búin að vera í útileikjum í ellefu daga þar sem við spiluðum við Washington og New York. Ég er búin að vera á hótellífinu í tvær vikur og það er það erfiðasta við þetta. Ég get samt ekki kvartað," sagði Sveindís og brosti.
Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.