Fotbolti.net
09.10.26 - 08:15
Elvar Geir Magnússon

Everton til sölu

Dan Friedkin með sólgleraugun.

Dan Friedkin með sólgleraugun.

Canon

Mynd: EPA

Bandaríski viðskiptamaðurinn Dan Friedkin er tilbúinn að hlusta á tilboð í Everton og skoðar að selja félagið, innan við tveimur árum eftir að hafa keypt það fyrir rúmlega 400 milljónir punda.

Í tilkynningu frá eignarhaldsfélaginu The Friedkin Group segir að Everton hafi staðið frammi fyrir mikilli fjárhagslegri óvissu þegar það tók við rekstrinum.

„Nú þegar þessi grunnur er tryggilega kominn á réttan stað er tími til að huga að næsta kafla í sögu Everton," segir í tilkynningunni.

Moyes hefur aldrei talað við eiganda Everton
TENGT EFNI

Moyes hefur aldrei talað við eiganda Everton

David Moyes stjóri Everton, sagði frá því nýlega að hann hafi aldrei hitt eða talað við Friedkin. Eigendurnir fengu mikla gagnrýni eftir misheppnaðan sumarglugga sem skildi Moyes eftir með mjög þunnskipaðan hóp.

Eftir lok gluggans stóð Everton eftir með aðeins átján aðalliðsleikmenn, einn leikmann í stöðu fremsta manns, einn hægri bakvörð og einn vinstri bakvörð.
Everton til sölu
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.