09.10.26 - 13:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aron Snær spáir í 6. umferð ensku úrvalsdeildarinnar

Aron Snær fagnar marki með Þrótti í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Piero Hincapie.

Mynd: EPA

Cunha tekur surfið.

Mynd: EPA

Jair Cunha.

Mynd: Nottingham Forest

City mætir Liverpool.

Mynd: EPA

Harvey Barnes.

Enska úrvalsdeildin snýr aftur á morgun eftir landsleikjahléið langa. Það eru margir áhugaverðir leikir um helgina.
Aron Snær Ingason, leikmaður Þróttar, spáir í leikina sem eru framundan.

TENGT EFNI
Tíu leikmenn sem þurfa að rífa sig í gang
Arsenal 2 - 1 Leeds (11:30 á morgun)
Þetta verður erfiður leikur fyrir gerpin í Arsenal. Leedsararnir hafa verið seigir í upphafi tímabils, en þessi leikur fer því miður 2-1 fyrir Arsenal. Hincapié skorar tvö með berum bossanum.
Aston Villa 1 - 2 Brentford (14:00 á morgun)
Jafnteflisbragur yfir þessum leik, 1-1 framan af, en það endar með því að Kristoffer Ajer setur alveg eins screamer og hann skoraði á móti Portúgal um helgina. Hann setur rýting í Villa í Steve-dagskrá og leikurinn endar 1-2. Hlakka mest til að heyra svo í Villa gera þennan leik upp í Steve.
Chelsea 3 - 1 Bournemouth (14:00 á morgun)
Erfiður leikur fyrir Chelsea, en þetta endar með Morgan Rogers-sýningu á Brúnni. 3-1 fyrir Chelsea. Jordan Henderson leggur upp eitt á Danny Welbeck.
Ipswich 1 - 0 Fulham (14:00 á morgun)
Vel boring leikur sem endar með 1-0 heimasigri hjá Ipswich. Sá síungi, Daizen Maeda, með winnerinn.
Sunderland 0 - 0 Brighton (14:00 á morgun)
Steindautt 0-0 jafntefli sem verður samt ekki steindautt, því Brian Brobbey verður búinn að jafna sig af meiðslum og kemur inn á til að valda usla með allan sinn skrokk og fas. Granit Xhaka fær svo eitt glórulaust rautt spjald fyrir að brjóta á honum.
Man Utd 3 - 0 Tottenham (16:30 á morgun)
Ég og Viktor Andri Hafþórsson, sem er með United-djöfulinn tattúeraðan á trícepinn á sér og er þar af leiðandi einn harðasti stuðningsmaður United í heiminum, erum mættir til Manchester til þess að fara á þennan leik. Síðast þegar við fórum á Old Trafford steinlágu okkar menn fyrir Liverpool, 5-0. Leikurinn á laugardaginn fer betur en sá leikur og endar með 3-0 sigri United. Kobbie Mainoo verður unplayable eins og alltaf. Dalot og Mazraoui skipta með sér hægri vængnum og verða með sitt hvort hryðjuverkashowið. Cunha með þrennu og Bruno leggur þau öll upp. Cunha tekur svo væntanlega besta fagnið out there og surfar um Leikhús draumanna.
Crystal Palace 0 - 3 Nottingham Forest (13:00 á sunnudag)
Sannfærandi útisigur hjá Forest. Hann endar 0-3 og hafsentinn geðþekki Jair Cunha skorar þrennu eins og nafni sinn og tekur surfið.
Hull 1 - 2 Everton (13:00 á sunnudag)
2-1 fyrir Everton í fjörugum leik. Barry slekkur í Evrópudraumum Hullaranna.
Liverpool 1 - 2 Man City (15:30 á sunnudag)
Hatewatch á Liverpool þarna og það mun ganga vel, því svindlararnir í City vinna þetta 2-1 og hlaupa með titilinn sem verður síðan tekinn af þeim. United vinnur Premier League því þeir lenda í öðru sæti, líkt og árin 2012, 2018 og 2021.
Coventry 0 - 2 Newcastle (19:00 á mánudag)
Ég held að ég sleppi því að horfa á þennan leik, en þegar ég mun opna FotMob seinna um kvöldið mun poppa upp 2-0 fyrir Newcastle. Harvey Barnes með að minnsta kosti eitt mark.
Fyrri spámenn:
Stefan Ljubicic (6 réttir)
Gaui Lýðs (5 réttir)
Dom Ankers (5 réttir)
Gunni Birgis (5 réttir)
Hjammi (4 réttir)