09.10.26 - 09:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimir á förum og Aron Baldvin að taka við?

Heimir Guðjónsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Aron Baldvin Þórðarson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll er líka orðaður við Stjörnuna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjónsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Heimir Guðjónsson verður líklega ekki áfram þjálfari Fylkis og hefur hann verið orðaður við önnur þjálfarastörf. Þetta kom fram í risastóra íslenska slúðurpakkanum sem birtur var í gær. Fylkir endaði í 3. sæti Lengjudeildarinnar í fyrra og var það fyrsta ár Heimis sem þjálfari liðsins. Liðið tapaði svo á móti Þrótti í úrslitaleik umspilsins um sæti í Bestu deildinni.
Þessi margfaldi Íslandsmeistari hefur mest verið orðaður við Stjörnuna en er einnig sagður hafa fundað með ÍA og er þá einnig orðaður við KA sem gæti farið í breytingar á þjálfarateymi sínu eftir tímabilið.

TENGT EFNI
Risastóri íslenski slúðurpakkinn - Stór nöfn á faraldsfæti
Þeir Olgeir Sigurgeirsson, Brynjar Kristmundsson og Hákon Ernir Haraldsson stýra Stjörnunni út tímabilið en þeir tóku við þegar Jón Þór Hauksson var látinn fara.
Heimir og Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Gróttu, eru mest orðaðir við Stjörnuna á þessum tímapunkti.
Það er svo Aron Baldvin Þórðarson, aðstoðarþjálfari Íslandsmeistaranna í Víkingi, sem er mest orðaður við þjálfarastöðuna hjá Fylki en Aron Baldvin er með tengingar við Fylki, er þar uppalinn, og sagði í viðtali við Fótbolta.net í síðasta mánuði að það kitlaði að taka að sér að sér aðalþjálfarastarf.
„Ég viðurkenni það alveg að það er byrjað að kitla ansi mikið að fá að vera sinn eigin herra og stýra skútunni einhvers staðar. Mér finnst ég vera mjög tilbúinn í það núna, hef fengið mikið traust frá Sölva og er gríðarlega þakklátur fyrir það. Ég hef fengið risa ábyrgð, fengið að sjá um taktík liðsins að stóru leyti og það hjá langbesta liði landsins sem er alls ekki sjálfsagt. Það hefur hjálpað mér mikið og mig langar að fara búa til mitt eigið verkefni á einhverjum góðum stað. En ef enginn sækist eftir mér þá er ég ánægður í Víkingi, þetta er góður staður til að vera á. Ég er ekki örvæntingarfullur, en ef tækifærið býðst þá er ég klárlega tilbúinn," sagði Aron Baldvin sem er fæddur árið 1995.