Fotbolti.net
09.10.26 - 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Slógu sitt eigið met um daginn

Skrifar frá Rovinj í Króatíu

Glódís er fyrirliði Bayern og íslenska landsliðsins.

Glódís er fyrirliði Bayern og íslenska landsliðsins.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Eimskip
„Við höfum farið vel af stað," sagði landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir þegar hún ræddi við Fótbolta.net um upphafið á tímabilinu hjá Bayern München í Þýskalandi.

Eins og hjá íslenska landsliðinu, þá er Glódís fyrirliði Bayern sem hefur hingað til unnið alla sína leiki í Bundesligunni ásamt því að hafa farið vel af stað í Meistaradeildinni.
Glódís: Hefur setið svolítið lengi í mér
TENGT EFNI

Glódís: Hefur setið svolítið lengi í mér

Manstu hvenær þið töpuðuð síðast leik heima fyrir?

„Ég var að lesa einhverja frétt um þetta, eru einhverjir 46 leikir held ég sem við erum taplausar í. Við vorum að slá okkar eigið met um daginn. Það er ótrúlega gaman. Þetta er frábært lið og frábærir leikmenn, ótrúlega gaman að vera partur af þessu liði."

Glódís segir það ekki áskorun að halda háu gæðastigi.

„Það er það eiginlega ekki. Við gerum ótrúlega miklar kröfur á okkar sjálfar. Við vitum hver okkar besta frammistaða er og þegar við náum henni ekki, þá erum við ekki endilega sáttar. Við reynum að fagna öllu en við vitum að við getum gert betur. Við stefnum á það að spila 90 mínútur af góðum fótbolta. Það er alltaf hægt að finna eitthvað til að vinna í og verða betri," sagði Glódís.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.