09.10.26 - 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Farke og stjórnarformaður Leeds tjáðu sig um City-málið

Daniel Farke

Mynd: EPA

Paraag Marathe, stjórnarformaður Leeds

Mynd: Leeds United

Daniel Farke

Mynd: EPA
Daniel Farke, stjóri Leeds United, sér ekki ástæðu til að tjá sig um mál ensku úrvalsdeildarinnar gegn Manchester City en Paraag Marathe, stjórnarformaður félagsins, hefur sínar skoðanir og ætlar að halda þeim fyrir sig í bili.

TENGT EFNI
„Ég er fótboltaþjálfari, ekki stjórnmálamaður“
Man City var fundið sekt í flestum ákæruliðum vegna brota á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar og hefur áfrýjað niðurstöðunni.
Úrskurðurinn skók fótboltaheiminn og mikið er í húfi fyrir deildina. Farke var einn margra stjóra sem fengu spurningu um málið en sagðist ekki rétti maðurinn til að leggja dóm á það.
„Það er hæfara fólk en ég til að ræða þetta og það er ekki mitt að dæma. Ég tók ekki þátt í titilbaráttunni á þessum árum. Ég vann bara einn leik gegn þeim með Norwich og get því varla kvartað. Það er óþarfi að allir í heiminum tjái sig um þetta,“ sagði Farke.
Stjórnarformaðurinn vill ekki viðra skoðanir sínar
Stjórnarformaðurinn Marathe hefur sínar skoðanir en telur ekki tímabært að viðra þær.
„Við leyfum málinu að fara sinn gang. Auðvitað hef ég skoðanir á þessu en það er líklega best að halda þeim fyrir mig í bili.“
„Hver sem niðurstaðan verður er ég viss um að hún komi í ljós. Þegar rétti vettvangurinn er til staðar og greiðslan nógu góð mun ég svara. Ég vil bara vera viss um að ég viti nóg áður en ég segi mína skoðun. Niðurstaðan verður að vera réttlát.“
„Ég veit ekki nóg í augnablikinu til að segja hvað væri réttlátt. Í öllum íþróttum vill fólk að sömu reglur gildi um alla og að allir sitji við sama borð. Nú einbeitum við okkur að næsta verkefni, leiknum gegn Arsenal á morgun,“ sagði hann.