09.10.26 - 11:52
Elvar Geir Magnússon
Landsliðsmenn mættu á pókerklúbb - „Gat ekki séð neitt vesen“

Gunnar Birgisson var á sama pókerklúbbi og strákarnir.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristján Óli Sigurðsson segir að menn hafi ekki mætt í standi á æfingu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eins og greint var frá í gær var fundað hjá KSÍ vegna agabrota leikmanna í landsliðsglugganum. Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ, sagði við Fótbolta.net að búið væri að ræða við leikmennina og málið væri afgreitt. Það yrðu engir eftirmálar.
Gunnar Birgisson segir frá því í Dr. Football í dag að hann hafi verið á pókerklúbbi þar sem leikmennirnir hefðu einnig verið.
„Ég get bara sagt það að ég varð vitni á þessum ágæta stað, ég gat ekki séð að það var neitt vesen á þessum drengjum. Menn voru bara aðeins að komast út úr þessari hringiðu. Það var ekki minn skilningur að það væri eitthvað vesen," segir Gunnar.

TENGT EFNI
Agabrot innan íslenska landsliðshópsins í glugganum
Fjórir til fimm leikmenn
Kristján Óli Sigurðsson í Þungavigtinni horfir öðruvísi á þetta og er ekki sáttur við hegðun leikmannana.
„Menn mættu ekki í standi á æfingu á sunnudagsmorgni, það er vandamálið," segir Kristján en umræddir leikmenn fóru á pókerklúbb eftir leikinn gegn Búlgaríu síðasta laugardag. Liðið flaug til Eistlands daginn eftir og gerðu 1-1 jafntefli við heimamenn.
„Menn gerðu sér glaðan dag hingað og þangað, þetta voru fjórir til fimm leikmenn. Þeir verða að eiga þetta við sjálfa sig, þeir eru meðal annars að bregðast liðsfélögunum. Gylfi Sig er að spila rifbeinsbrotinn í Eistlandi. Hversu pirraður heldur þú að hann hafi verið þegar hann frétti af þessu? Og stuðningsmenn Íslands, ég eyddi 40 þúsund krónum í miða á leikina því maður vill leyfa sonum sínum að horfa á átrúnaðargoð sín."
„Svo bregðast þeir þjóðinni endanlega með því að gera þetta skítajafntefli við Eista. Frammistaðan inni á vellinum var ömurleg," segir Kristján og segir að meðal byrjunarliðsmanna í leiknum hafi verið menn sem um ræðir. Hann segir þetta óvirðingu í garð Arnars Gunnlaugssonar landsliðsþjálfara.
„Þeir bera enga virðingu fyrir Arnari, þeim er drullusama og hlýða ekki. Ég hefði aldrei séð þetta gerast undir Lars eða Heimi, Hann velur hóp fyrir nóvember og það verður fróðlegt að sjá hvað hann gerir."
Ísland leikur síðustu leiki riðilsins í nóvember; gegn Búlgaríu á útivelli og Lúxemborg heima.