09.10.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Simons í Harvard - „Fótboltinn er enn í forgangi”

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Hollenski sóknartengiliðurinn Xavi Simons hefur skráð sig í nám við hinn virta Harvard-háskóla í Bandaríkjunum.
Simons er 23 ára og hefur verið frá keppni með Tottenham síðan hann sleit krossband í apríl. Hann ætlar að nýta tímann utan vallar til að setjast á skólabekk.
Hollendingurinn greindi frá því á LinkedIn að hann muni taka námskeið við Harvard um viðskiptahlið íþrótta. Það er sérsniðið að afreksíþróttafólki og fær Simons nemanda við skólann sér til aðstoðar í náminu.
„Ég er á leið aftur í skóla. Ég hef reynt að nýta tímann í endurhæfingunni eins vel og ég get. Fótboltinn er enn í forgangi en ég vil líka halda áfram að læra og bæta mig utan vallar.“
„Ég hef alltaf haft áhuga á fleiru en fótbolta. Ég vil skilja viðskiptahlið leiksins, læra af fólki úr ólíkum starfsgreinum og halda áfram að þroskast sem manneskja,“ sagði Simons.
Hann fór til Boston á dögunum vegna endurhæfingarinnar og nýtti ferðina til að heimsækja Harvard.
„Það er enn í fyrsta sæti að komast aftur á völlinn en á meðan vil ég nýta tímann til að læra og byggja mig upp utan fótboltans. Ég hlakka til að hefja námið,“ sagði Simons.
Eduardo Camavinga, leikmaður Real Madrid, fór einnig í nám við skólann í sumar eftir að hafa ekki verið valinn í franska landsliðið. Sir Alex Ferguson tók þá að sér kennslu við Harvard árið 2014, eftir að hann hætti sem stjóri Manchester United.