Fotbolti.net
09.10.26 - 12:47
Elvar Geir Magnússon

Lárus hneykslaður - „Hefði aldrei verið látið viðgangast á vakt Lars og Heimis“

Lárus Guðmundsson.

Lárus Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Nú er mér öllum lokið!" skrifar Lárus Guðmundsson, fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður í fótbolta, í færslu á Facebook um fréttir af agabrotum landsliðsmanna Íslands í síðasta glugga. Lárus er í dag varaþingmaður Miðflokksins.

„Orðrómur um drykkju einhverra landsliðsmanna eftir leikinn á móti Búlgaríu og þremur dögum fyrir leikinn mikilvæga gegn
Eistum. Virðist staðfestur af hálfu framkvæmdastjóra KSÍ Eysteini Lárussyni sem jafnframt lýsir því að eftir samtal við hlutaðeigandi sé málinu lokið og bara áfram gakk. Sem sagt án afleiðinga fyrir brothafa?"
Agabrot innan íslenska landsliðshópsins í glugganum
TENGT EFNI

Agabrot innan íslenska landsliðshópsins í glugganum

„Ég fullyrði að slíkt risa agabrot hefði aldrei verið látið viðgangast á vakt Lars Lagerback og Heimis Hallgrímssonar. KSÍ þarf að gera hreint fyrir sínum dyrum og upplýsa um hversu alvarlegt brotið var og hverjir vor hinir brotlegu. Og síðan að grípa til viðeigandi ráðstafana sem eru svo fordæmisgefandi."

Eins og greint var frá í gær var fundað hjá KSÍ vegna agabrota leikmanna í landsliðsglugganum. Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ, sagði við Fótbolta.net að búið væri að ræða við leikmennina og málið væri afgreitt. Það yrðu engir eftirmálar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.