Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 09. nóvember 2020 14:00
Magnús Már Einarsson
Heimir tók fram skóna og spilaði á móti Xavi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þjálfarar í úrvalsdeildinni í Katar tóku fram takkaskóna í gær og spiluðu æfingaleik sín á milli.

Fyrir fund hjá úrvalsdeildinni í Katar var ákveðið að henda í léttan æfingaleik.

Heimir Hallgrímsson, þjálfari Al Arabi, tók fram skóna en hann spilaði síðast með KFS í 3. deildinni árið 2007.

Meðal liðsfélaga Heimis í leiknum var Slavisa Jokanovic, fyrrum miðjumaður Chelsea og núverandi þjálfari Al-Gharafa.

Þeir fengu alvöru samkeppni því í liði andstæðinganna var Xavi, fyrrum miðjumaður Barcelona og núverandi þjálfari Al Sadd.

Hér að neðan má sjá myndir úr leiknum frá því í gær.


Athugasemdir
banner
banner