09.11.26 - 17:19
Elvar Geir Magnússon
Fundað um framtíð Carrick

Michael Carrick, stjóri Manchester United.

Mynd: EPA

Wilcox og Berrada þungir á brún.

Fundað er hjá Manchester United um hvort reka eigi Michael Carrick. Jason Wilcox, yfirmaður fótboltamála hjá félaginu, leiðir þessa endurskoðun.
Wilcox vinnur með framkvæmdastjóranum Omar Berrada áður en tilmæli verða lögð fyrir Sir Jim Ratcliffe.

TENGT EFNI
Ofurtölvan telur 22% líkur á að Man Utd falli
United er í fallsæti í ensku úrvalsdeildinni og hefur aðeins unnið þrjá sigra í fimmtán leikjum í öllum keppnum.
Carrick var nálægt því að vera rekinn eftir 3-0 tapið gegn Bournemouth þann 25. október. En eftir að Wilcox og Berrada hittust daginn eftir á æfingasvæðinu til að ræða stöðu hans var ákveðið að Carrick fengi þrjá leiki fram að landsleikjahléinu til að sýna að hann gæti snúið við slæmri byrjun.
United tapaði síðan 2-0 gegn Chelsea, vann Roma 3-2 á Old Trafford og gerði 4-4 jafntefli á heimavelli gegn Villa á sunnudaginn.
Guardian segir að ef Carrick verði látinn fara sé Eddie Howe sá sem Jason Wilcox vill helst fá í starfið.