Fotbolti.net
09.11.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þjálfari rekinn af velli fyrir að setja höfuðið leikmann

Þjálfari rekinn af velli fyrir að setja höfuðið leikmann
Canon

Mynd: Oldham Athletic

Það ætlaði allt um koll að keyra í leik Oldham og Sheffield Wednesday í 2. umferð enska bikarsins í gær.

Micky Mellon, stjóri Oldham, var rekinn af velli fyrir að skalla Callum Slattery, leikmann Sheffield.
Mellon virtist taka Slattery hálstaki og dró hann til sín. Þeir rifust sem endaði með því að Mellon setti höfuðið í Slattery. Leikmenn beggja liða skárust í leikinn og það voru einhverjar kítingar áður en þetta leið hjá.

Svo fór að Oldham, sem spilar í D-deildinni, vann Sheffield, sem spilar í C-deildinni, eftir framlengdan leik.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.