Fotbolti.net
09.12.19 - 19:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Byrjunarliðin í Lundúnarslagnum: Martinelli og Antonio byrja frammi

Gabriel Martinelli byrjar frammi ásamt Aubameyang.

Gabriel Martinelli byrjar frammi ásamt Aubameyang.

Canon

Mynd: Getty Images

Klukkan 20:00 hefst viðureign West Ham og Arsenal, leikið er á London Stadium, heimavelli West Ham.

Félögin hafa bæði verið í mikilli brekku undanfarið og gengið illa að sigra leiki. Arsenal hefur ekki sigrað leik í deildinni síðan í byrjun október en West Ham tókst að leggja Chelsea að velli fyrir rúmri viku.
Liðin eru bæði í neðrihluta deildarinnar og vilja, eins og öll lið langoftast, ná í sigur í kvöld.

Manuel Pellegrini, stjóri West Ham, velur Michael Antonio sem sinn fremsta mann á kostnað Sebastian Haller. Felipe Anderson og Robert Snodgrass eru á vængjunum og Declan Rice, Mark Noble og Pablo Fornals eru á miðjunni. David Martin, hetjan frá því á Stamford Bridge, er í marki West Ham.

Freddie Ljungberg, tímabundinn stjóri Arsenal, setur Alexandre Lacazette á bekkinn. Gabriel Martinelli og Nicolas Pepe byrja leikinn fremstir með Pierre-Emerick Aubameyang og Mesut Özil er þar fyrir aftan. Callum Chambers er í miðverðinum við hlið Sokratis.

Byrjunarlið West Ham: Martin, Fredericks, Ogbonna, Balbuena, Cresswell, Rice, Noble, Snodgrass, Fornals, Anderson, Antonio.

(Varamenn: Roberto, Zabaleta, Masuaku, Diop, Sanchez, Holland, Haller.)

Uppfært: Byrjunarlið Arsenal: Leno, Maitland-Niles (Bellerin meiddist í upphitun), Chambers, Sokratis, Tierney, Torreira, Xhaka, Pepe, Ozil, Martinelli, Aubameyang.

(Varamenn: Martinez, David Luiz, Kolasinac (Maitland-Niles), Guendouzi, Nelson, Saka, Lacazette.)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle6-38
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Coventry6-66
15Nott. Forest6-35
16Aston Villa6-55
17Sunderland6-64
18Bournemouth6-63
19Tottenham6-63
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.