Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði Íslands, mætti í dag á æfingasvæði franska stórliðsins Lyon og kynnti liðsfélögum sínum fyrir syni sínum. Með í för var kærasti hennar og barnsfaðir, Árni Vilhjálmsson.
Sara og Árni eignuðust soninn Ragnar Frank í nóvember á síðasta ári.
Sara æfði á Íslandi á meðan meðgöngunni stóð en er núna komin aftur til Frakklands. Hún mun þar hefja aftur æfingar þegar hún treystir sér til en það er ekkert grín að koma til baka eftir meðgöngu.
„Að snúa aftur til Frakklands sem móðir með fjölskyldunni minni er mjög sérstakt fyrir mig og ég vonast til þess að veita öðrum konum innblástur að það þurfi ekki að fórna ferlinum til þess að stofna fjölskyldu. Konur eiga ekki að þurfa fórna ferlinum fyrir fjölskyldudrauminn. Þú getur gert bæði," skrifaði Sara nýverið á Instagram.
Ada Hegerberg, sem er markahæsti leikmaður í sögu Meistaradeildar kvenna, birti mynd á Twitter af Söru og syninum í dag. „Sjáið hana! Velkomin til baka Sara Björk," skrifaði Hegerberg.
Sara varð Evrópumeistari með Lyon árið 2019. Hún hefur talað um að stefnan sé að komast aftur á völlinn fyrir Evrópumótið næsta sumar. Þar mun hún vonandi leiða Ísland út á völlinn.
LOOK AT HER! Mamma's in the building. Welcome back @sarabjork18 🥺❤️ pic.twitter.com/6pVB7Ltf0p
— Ada S Hegerberg (@AdaStolsmo) January 10, 2022
L'Olympique Lyonnais accueille sa nouvelle recrue, Sara Björk Gunnarsdóttir est venue présenter son petit garçon à ses coéquipières 😁
— PiedsCarrés-Féminin (@PiedsCarresFem) January 10, 2022
La prochaine fois, il verra sûrement sa mère sur le terrain ! pic.twitter.com/4EUz7MCE4i
Athugasemdir