Sky Sports er búið að gefa leikmönnum einkunnir eftir 5-4 sigur Everton gegn Tottenham í 16-liða úrslitum enska bikarsins.
Gylfi Þór Sigurðsson var maður leiksins með 8 í einkunn, enda lagði hann upp þrjú mörk og skoraði eitt sjálfur af vítapunktinum.
Yerry Mina, Abdoulaye Doucoure og Richarlison fá einnig 8 í einkunn fyrir sinn þátt í leiknum en Hugo Lloris var skúrkurinn, með 4 í einkunn.
Son Heung-min og Harry Kane voru meðal bestu leikmanna Tottenham með 7 í einkunn. Sky telur Pierre-Emile Hojbjerg hafa átt sérstaklega slakan leik ásamt Lloris.
Everton: Olsen (7), Godfrey (7), Mina (8), Keane (6), Digne (6), Doucoure (8), Davies (6), Sigurdsson (8), Iwobi (6), Richarlison (8), Calvert-Lewin (7)
Varamenn: Coleman (7), Bernard (7)
Tottenham: Lloris (4), Doherty (6), Alderweireld (6), Sanchez (7), Davies (6), Hojbjerg (5), Ndombele (7), Lamela (6), Bergwijn (6), Lucas (6), Son (7)
Varamenn: Kane (7), Alli (6), Winks (6), Vinicius (6), Sissoko (6)
Athugasemdir