Roman Abramovich, eigandi Chelsea, er meðal rússneskra viðskiptamanna sem eru komnir á refsiaðgerðalista Bretlands. Eignir Abramovich og þeirra Igor Sechin, Oleg Deripaska og Dmitri Lebedev hafa verið frystar af breskum stjórnvöldum.
Abramovich er eigandi Chelsea og staða félagsins er í skoðun. Chelsea getur enn verið starfrækt en söluferlið hefur verið stöðvað og aðeins ársmiðahafar geta mætt á leiki.
Abramovich er eigandi Chelsea og staða félagsins er í skoðun. Chelsea getur enn verið starfrækt en söluferlið hefur verið stöðvað og aðeins ársmiðahafar geta mætt á leiki.
Má ekki semja við leikmenn og selja miða
Chelsea fær sérstakt leyfi frá ríkistjórninni sem tryggir að félagið standi við leiki sína og starfsmenn og leikmenn fái greitt. Þetta sé gert þar sem félagið flokkist sem mikilvægt menningarverðmæti.
Abramovich mun hinsvegar ekki geta hagnast á félaginu eftir að hafa verið settur á refsiaðgerðarlistann. Honum er því ekki leyft að selja félagið, eins og hann hefur verið að vinna að undanfarna daga.
Þá má Chelsea ekki gera nýja samninga við leikmenn.
Ársmiðaeigendur hjá Chelsea geta enn mætt á leiki þar sem þeir eiga miða en klúbburinn getur nú ekki selt fleiri miða en þá sem þegar hafa verið seldir. Þá er búið að loka verslun félagsins tímabundið.
Talinn hafa sterk tengsl við Pútín
Áðurnefndir rússneskir viðskiptamenn hafa verið settir á refsiaðgerðarlistann eftir innrás Rússlands í Úkraínu. Sagt hefur verið að Abramovich sé með sterk tengsl við Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Hann hefur sjálfur neitað því.
„Það má ekki vera neinn öruggur griðarstaður fyrir þá sem hafa sýnt innrásinni stuðning," sagði Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands.
Athugasemdir


