Fotbolti.net
13.06.26 - 15:27
Brynjar Ingi Erluson

Lengjudeild kvenna: Sjö mörk á Seltjarnarnesi

Grótta er í öðru sæti eftir sigurinn í dag

Grótta er í öðru sæti eftir sigurinn í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Hertz
Grótta 4 - 3 Keflavík
1-0 Katrín Rut Kvaran ('7 )
1-1 Hilda Rún Hafsteinsdóttir ('43 )
1-2 Ariela Lewis ('45 )
2-2 Katrín Rut Kvaran ('47 )
3-2 Thelma Björg Gunnarsdóttir ('58 )
4-2 Díana Ásta Guðmundsdóttir ('80 )
4-3 Alyssa Yana Daily ('87 )
Lestu um leikinn
Grótta hafði sigur gegn Keflavík, 4-3, í háspennuleik í Lengjudeild kvenna á Vivaldi-vellinum á Seltjarnarnesi í dag.

Katrín Rut Kvaran kom Gróttu á bragðið á 7. mínútu eftir gott samspil.

Bæði lið fengu fullt af færum á fyrstu 25 mínútunum og í raun ótrúlegt að staðan hafi aðeins verið 1-0 á þeim tímapunkti. Undir lok fyrri hálfleiks tókst Keflavík að jafna þegar Hilda Rún Hafsteinsdóttir nýtti sér skoppandi bolta í teignum og tók hann á lofti og stýrði í samskeytin.

Aðeins fáeinum mínútum síðar kom Ariela Lewis gestunum yfir er Keflavík vann boltann á miðjunni, honum komið inn á Arielu sem vippaði yfir markvörðinn og í netið.

Grótta svaraði strax í upphafi síðari hálfleiks. Katrín Rut með annað mark sitt er hún hirti frákast í teignum og náði Thelma Björg Gunnarsdóttir að snúa við taflinu ellefu mínútum síðar sem kláraði í nærhornið.

Díana Ásta Guðmundsdóttir náði í mikilvægt fjórða mark Gróttu á 80. mínútu. Lovísa Davíðsdóttir Scheving fékk boltann, kom honum á Díönu sem setti boltann í markið.

Alyssa Yana Daily veitti Keflavík líflínu á 87. mínútu. Margrét hljóp út úr marki Gróttu, en Olivia Madeline Simmons náði að pota boltanum á Alyssu sem skoraði.

Fleiri urðu þó mörkin ekki og var það Grótta sem fagnaði mikilvægum sigri. Grótta fer upp í annað sæti deildarinnar með 15 stig, einu stigi frá toppliði Hauka, en Keflavík i 6. sæti með 7 stig.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar6+716
2Grótta6+1015
3KR5+712
4ÍA7+610
5Völsungur708
6Keflavík6+27
7Selfoss6-37
8FHL5-24
9HK5-64
10Tindastóll5-210
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.