Fotbolti.net
13.06.26 - 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spámaður

Birkir Már spáir í 10. umferð Bestu deildarinnar

Birkir Már Sævarsson.

Birkir Már Sævarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birkir Már Sævarsson var stjarna vikunnar þegar hann var maður leiksins í sigri Aftureldingar gegn Stjörnunni í Mjólkurbikar karla. Hann er 41 árs gamall en er enn í fullu fjöri í fótboltanum.

Birkir Már spáir í tíundu umferð Bestu deildarinnar.
Þór 3 - 3 ÍBV (16:30 á morgun)
Þetta verður stórskemmtilegur og opinn leikur. Hugsa að við gætum jafnvel fengið að sjá eitt eða tvö rauð spjöld. Gústi Hlyns, Atli Sigurjóns og Einar Freyr skora fyrir Þór. Omar Sowe með tvö og Alex Freyr eitt.

Keflavík 3 - 1 FH (17:00 á morgun)
Keflvíkingar eru búnir að vera flottir í byrjun móts en fengu alvöru spark í rassinn síðast. Þeir mæta ákveðnir til leiks og komast í 2-0 í fyrri hálfleik. FH-ingar minnka síðan muninn áður en Keflvíkingar klára leikinn í uppbótartíma. Ætli minn maður Breki Baxter skori ekki tvö fyrir Kef og gamla kempan Sindri Snær eitt. Kjartan Kári skorar beint úr aukaspyrnu.

KA 1 - 2 Fram (18:00 á mánudag)
Framarar hafa verið flottir í byrjun móts og leikirnir þeirra mikil skemmtun. En ég held að KA nái að halda þeim í skefjum í þessum leik. Framarar ná þó að kreista fram sigur í mjög jöfnum leik. Kennie heldur áfram að spila eins og hann sé 25 ára og skorar eitt. Freyr skorar hitt. Grímsi skorar fyrir KA.

ÍA 0 - 4 Valur (19:15 á þriðjudag)
Þetta verður öruggasti sigur umferðarinnar. Valsarar mæta dýrvitlausir uppá Skipaskaga og keyra yfir Skagamenn. Frændi minn hann Tryggvi Hrafn setur tvö og Hólmar eitt. Ég tók Loka Kristjáns í smá skotkennslu fyrir nokkrum dögum og ætli hann komi ekki inn á í lokin og setji eitt í skeytin?

Stjarnan 3 - 2 Breiðablik (19:15 á þriðjudag)
Erfiðir dagar hjá Stjörnunni um þessar mundir. En þeir eru seigir í frystikistunni í Garðabænum. Þeir munu taka óvæntan sigur í þessum leik. Emil skorar tvö og Birnir eitt. Kristófer Ingi með bæði fyrir Blika.

Víkingur R. 5 - 4 KR (19:15 á þriðjudag)
Vá, þetta verður veisla. Held að hann muni standast allar væntingar og rúmlega það. Varnarleikur verður aukaatriði og menn hugsa bara um að skora meira en andstæðingurinn. En Víkingarnir munu klára þetta og því miður verður lítil keppni um fyrsta sætið í Bestu deildinni. Það verða líka níu mismunandi markaskorarar og ég nenni ekki að telja þá alla upp.

Fyrri spámenn:
Elmar Kári (4 réttir)
Ragnar Bragi (4 réttir)
Gísli Gotti (4 réttir)
Júlíus Mar (3 réttir)
Stefán Þór (3 réttir)
Ágúst Brynjars (3 réttir)
Siggi Raggi (3 réttir)
Kári Sigfússon (2 réttir)
Siggi Hall (1 réttur)
Tryggvi Hrafn frændi.

Tryggvi Hrafn frændi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur mætir KR í stórleik umferðarinnar.

Víkingur mætir KR í stórleik umferðarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birkir spáir því að Stjarnan taki sigur.

Birkir spáir því að Stjarnan taki sigur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2KR20+2743
3Fram20+1443
4Breiðablik20+530
5Keflavík20-328
6ÍA20-426
7Stjarnan20-1024
8Valur20-723
9FH20-1218
10ÍBV20-1217
11KA20-1416
12Þór20-3015
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.